Afkoma ÁTVR á árinu 2019 var í samræmi við áætlun ársins. Hagnaður ársins var 1.056 m.kr. Eignir námu 6.246 m.kr, skuldir voru 1.628 m.kr. og eigið fé nam 4.618 m.kr. í árslok 2019. Greiddur var 1.000 m.kr. arður í ríkissjóð.
Áfengi var selt fyrir 30.275 m.kr. með virðisaukaskatti. Sala áfengis í lítrum jókst um 3,09% frá árinu á undan og seldust 22.664 þús. lítrar, þar af var bjórsala 17.694 þús lítrar.
Sala tóbaks nam 11.897 m.kr. með virðisaukaskatti. ÁTVR innheimtir tóbaksgjald. Gjaldið nam 5.686 m.kr. á árinu 2019 og lækkaði um 115 m.kr. frá árinu 2018. Sala vindlinga í magni minnkaði um 1,5%. Sala vindlinga nam 868 þús kartonum og af vindlum seldust 4.354 þúsund stykki.
Selt magn neftóbaks var 46.075 kg. og var það um 3,1% aukning frá fyrra ári.
Á árinu fengu 685 starfsmenn greidd laun hjá ÁTVR. Margir eru í hlutastarfi. Ársverk voru 354, þau eru óbreytt frá árinu 2018.
Ýmsar framkvæmdir voru á árinu. Meðal þeirra helstu var að framkvæmdum við Vínbúðina á Dalvegi lauk á árinu og Vínbúðirnar í Skeifunni og Reykjanesbæ voru stækkaðar og endurbættar. Vínbúðirnar á Akranesi og Selfossi voru fluttar á nýja staði og stækkaðar. Einnig voru Vínbúðirnar á Hvammstanga og Patreksfirði teknar í gegn og lagfærðar.
Lög um um gjald af áfengi og tóbaki var breytt í upphafi árs þannig að bæði áfengisgjald og tóbaksgjald var hækkað um 2,5%.
Forstjóri ÁTVR staðfestir ársreikning fyrirtækisins fyrir árið 2019 með undirritun sinni.
Reykjavík, 30. apríl 2020.
Ívar J. Arndal, forstjóri.
Áritun Ríkisendurskoðunar hefur verið uppfærð frá fyrri útgáfu 30. apríl.
Ríkisendurskoðandi starfar á grundvelli laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og siðareglur alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Hlutverk ríkisendurskoðanda er að tryggja að fram fari endurskoðun og eftirlit í samræmi við 4. gr. laganna.
Ríkisendurskoðandi ber húsbóndaábyrgð á störfum þeirra endurskoðenda sem starfa hjá Ríkisendurskoðun og framkvæma endurskoðun á grundvelli laga um endurskoðendur og endurskoðun, lögum um ársreikninga og þeim almennu reglum sem þeir hlíta samkvæmt alþjólðlegum endurskoðunarstöðlum.
Kannað var hvort rekstur félagsins var í samræmi við þau lög sem um félagið gilda og eftir atvikum fjárlög og fjáraukalög, sbr. meginreglur laga nr. 46/2016 og lög um opinber fjármál nr. 123/2015.
Endurskoðunin var framkvæmd í samræmi við lög nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og lög nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun.
Ríkisendurskoðun, 6. júlí 2020
Undirritað rafrænt
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisendurskoðandi.
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning ÁTVR fyrir árið 2019. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn sýni glögga mynd af fjárhagsstöðu ÁTVR 31. desember 2019, afkomu félagsins og breytingu á handbæru fé á árinu 2019, í samræmi við lög um ársreikninga og alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu.
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér á eftir. Við erum óháð ÁTVR og höfum starfað í samræmi við lög nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun og siðareglur endurskoðenda. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á ársreikningnum.
Stjórnendur er ábyrgir fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og lög um ársreikninga. Stjórnendur eru einnig ábyrgir fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar við gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit á ársreikningnum.
Nægjanleg vissa er mikið öryggi, en ekki trygging þess að endurskoðun sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og hún byggir á faglegri dómgreind og gagnrýnni hugsun. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Okkur ber skylda til að upplýsa stjórnendur félagsins um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar. Jafnframt var upplýst um mikilvæg atriði sem fram komu við endurskoðunina, þar á meðal eftir atvikum verulega annmarka á innra eftirliti.
Ríkisendurskoðun, 6. júlí 2020
Undirritað rafrænt
Óskar Sverrisson, endurskoðandi.
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Rekstrartekjur | |||
Sala áfengis | 27.275.183 | 25.756.247 | |
Sala tóbaks | 9.594.068 | 9.441.805 | |
Sala umbúða o.fl. | 99.794 | 93.106 | |
36.969.045 | 35.291.158 | ||
Rekstrargjöld | |||
Vörunotkun | 10 | 31.273.672 | 29.824.379 |
Laun og launatengd gjöld | 11 | 2.961.032 | 2.806.016 |
Húsnæðiskostnaður | 721.890 | 634.417 | |
Sölu- og dreifingarkostnaður | 238.758 | 244.934 | |
Stjórnunar- og skrifstofukostnaður | 372.512 | 379.510 | |
Annar rekstrarkostnaður | 50.816 | 47.344 | |
Afskriftir | 13 | 246.544 | 237.010 |
35.865.224 | 34.173.610 | ||
Rekstrarhagnaður | 1.103.821 | 1.117.548 | |
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | 12 | (47.410) | (6.289) |
Hagnaður ársins | 1.056.411 | 1.111.259 |
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 4,13 | 1.532.798 | 1.318.810 |
Eignarhlutir í öðrum félögum | 5,14 | 7.500 | 7.500 |
Fastafjármunir samtals | 1.540.298 | 1.326.310 | |
Birgðir | 6,15 | 1.944.593 | 2.123.079 |
Viðskiptakröfur | 7,16 | 2.156.340 | 1.824.424 |
Handbært fé | 8 | 604.435 | 1.059.812 |
Veltufjármunir samtals | 4.705.368 | 5.007.315 | |
Eignir samtals | 6.245.666 | 6.333.625 | |
Eigið fé og skuldir | |||
Eigið fé | |||
Óráðstafað eigið fé | 17 | 4.617.626 | 4.561.215 |
Eigið fé samtals | 4.617.626 | 4.561.215 | |
Skammtímaskuldir | |||
Lánardrottnar | 9 | 957.849 | 1.073.709 |
Aðrar skammtímaskuldir | 670.191 | 698.701 | |
Skammtímaskuldir samtals | 1.628.040 | 1.772.410 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 6.245.666 | 6.333.625 | |
Skuldbindingar | 18 |
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Hagnaður ársins | 1.056.411 | 1.111.259 | |
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á sjóðstreymi: | |||
Afskriftir | 13 | 246.544 | 237.010 |
Söluhagnaður af fastafjármunum | (14.035) | (406) | |
Veltufé frá rekstri | 1.288.920 | 1.347.863 | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
Birgðir, lækkun (hækkun) | 178.486 | (120.833) | |
Skammtímakröfur (hækkun) | (331.916) | (95.534) | |
Skammtímaskuldir, (lækkun) | (144.370) | (120.333) | |
(297.800) | (336.700) | ||
Handbært fé frá rekstri | 991.120 | 1.011.163 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Fasteignir | 13 | 0 | (100.600) |
Innréttingar og annar búnaður | 13 | (435.848) | (167.564) |
Bifreiðar | 13 | (40.453) | (59.384) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 29.803 | 3.584 | |
Fjárfestingarhreyfingar | (446.498) | (323.964) | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Arður til ríkissjóðs | 17 | (1.000.000) | (1.000.000) |
Fjármögnunarhreyfingar | (1.000.000) | (1.000.000) | |
Lækkun á handbæru fé | (455.377) | (312.801) | |
Handbært fé í ársbyrjun | 1.059.812 | 1.372.613 | |
Handbært fé í lok ársins | 604.435 | 1.059.812 |
1. Ársreikningur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins er gerður í samræmi við lög nr. 3/2006 um ársreikninga og reglugerð nr. 696/2019 um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum og er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.
2. Ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki greiða almennt ekki tekjuskatta.
3. Eignir í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar í íslenskar krónur á kaupgengi í árslok en skuldir eru umreiknaðar á sölugengi. Viðskipti í erlendum gjaldeyri á árinu eru umreiknuð í íslenskar krónur á viðskiptadegi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning. Peningalegar eignir og skuldir sem bundnar eru verðtryggingu eru færðar miðað við vísitölur sem tóku gildi 1. janúar 2020. Breytingar sem myndast eru færðar í rekstrarreikning.
4. Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði. Frá kostnaðarverði eru dregnar reiknaðar afskriftir. Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum kostnaði við að koma eignunum á viðeigandi stað og í nothæft ástand. Afskriftir eru reiknaðar sem fastur árlegur hundraðshluti af kostnaðarverði miðað við áætlaðan endingartíma og eignarhaldstíma.
5. Eignarhlutar í félögum eru færðir á nafnverði.
6. Birgðir samanstanda af endursöluvörum og rekstrarvörum. Birgðirnar eru metnar á síðasta innkaupsverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.
7. Greiðslukortakröfur eru færðar meðal viðskiptakrafna. Viðskiptakröfur eru færðar á kostnaðarverði.
8. Handbært fé samanstendur af sjóði og bankainnstæðum.
9. Viðskiptaskuldir eru færðar á kostnaðarverði.
10. Tóbaksgjald er innheimt við sölu tóbaks og er því skilað mánaðarlega til Skattsins. Tóbaksgjaldið er skilgreint sem hluti af kostnaðarverði seldra vara í bókhaldi ÁTVR. Alls námu greiðslur tóbaksgjalds 5.686 m.kr. á árinu 2019.
Sundurliðun vörunotkunar | 2019 | 2018 |
---|---|---|
Vörunotkun áfengi | 23.342.019 | 22.012.493 |
Vörunotkun tóbak | 7.908.749 | 7.793.202 |
Vörunotkun umbúðir | 22.904 | 18.684 |
Samtals | 31.273.672 | 29.824.379 |
11. Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
Dagvinnulaun | 1.639.171 | 1.536.427 |
Yfirvinna | 690.435 | 654.812 |
Launatengd gjöld | 528.376 | 487.182 |
Viðbótarframlag til lífeyrissjóðs | 102.050 | 112.143 |
Áfallið reiknað orlof, breyting | 1.000 | 15.452 |
Samtals | 2.961.032 | 2.806.016 |
Launagjöld hækka um 5,5 % milli ára. Reiknuð ársverk á árinu 2019 voru 354 óbreytt frá 2018. Hækkun launavístölu 2019 var 4,5%.
Laun og launatengd gjöld vegna forstjóra námu 21,8 m.kr. en voru 21,9 m.kr. árið á undan.
Áunnið orlof starfsmanna til desemberloka er reiknað og fært í ársreikninginn. Það nam 149,4 m.kr. í árslok 2019 en til samanburðar var það 148,4 m.kr. árið áður.
Skuldbindingar ÁTVR vegna eftirlauna núverandi og fyrrverandi starfsmanna voru gerðar upp á árinu 1999. Skuldbindingar sem falla til árlega eru gerðar upp við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins jafnóðum. Samkvæmt uppgjöri LSR voru ógreiddar lífeyrisskuldbindingar B-deildar í árslok 2018 3,7 m.kr. Í lögum nr 127/2016 var gerð breyting um aukaframlag til A-deildar lífeyrisjóðs starfsmanna ríkisins. Hlutur ÁTVR árið 2019 98,4 m.kr en var 101,2 m.kr 2018.
12. Sundurliðun fjármunatekna og (fjármagnsgjalda)
2019 | 2018 | |
---|---|---|
Vaxtatekjur | 69.382 | 91.632 |
Arðstekjur | 1.500 | 3.150 |
Þóknanir vegna debet- og kreditkorta | (101.179) | (79.327) |
Fjármagnstekjuskattur | (15.541) | (20.761) |
Vaxtagjöld | (1.572) | (983) |
Samtals | (47.410) | (6.289) |
13. Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Bifreiðar | Fasteignir | Innréttingar og annar bún. | Samtals | |
---|---|---|---|---|
Stofnverð 1.1.2019 | 303.146 | 1.367.004 | 1.154.799 | 2.824.949 |
Viðbót á árinu | 40.453 | 435.848 | 476.300 | |
Selt og niðurlagt á árinu | -57.777 | -23.012 | -162.668 | -243.456 |
Stofnverð 31.12.2019 | 285.822 | 1.343.992 | 1.427.979 | 3.057.793 |
Afskrifað 1.1.2019 | 141.176 | 771.903 | 593.060 | 1.506.139 |
Afskrifað á árinu | 38.308 | 27.912 | 162.111 | 228.332 |
Selt og niðurlagt á árinu | -47.539 | -16.032 | -145.906 | -209.477 |
Afskrifað 31.12.2019 | 131.946 | 783.783 | 609.266 | 1.524.995 |
Bókfært verð 31.12.2019 | 153.876 | 560.209 | 818.713 | 1.532.798 |
Afskriftarhlutföll | 12-15% | 2-4% | 12-20% |
Gjaldfærð afskrift ársins var 228,3 m.kr og niðurlagðar eignir námu 18,2 m.kr.
Fasteignamat og vátryggingamat eigna félagsins í árslok greinist þannig:
Bókfært verð | Fasteignamat | Brunabótamat | |
---|---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 560.209 | 3.245.285 | 3.723.180 |
14. Hlutabréf í Endurvinnslunni hf. eru færð á nafnverði 7.500 þús. kr. Á árinu 2019 greiddi félagið 1.500 þús. kr. í arð til ÁTVR.
15. Birgðir um áramót skiptast í áfengi, tóbak, umbúðir og rekstrarvörur:
2019 | 2018 | |
---|---|---|
Áfengi | 1.742.139 | 1.832.048 |
Tóbak | 176.577 | 260.207 |
Umbúðir | 9.572 | 6.963 |
Rekstrarvörubirgðir | 16.305 | 23.861 |
Samtals | 1.944.593 | 2.123.079 |
16. Viðskiptakröfur sundurliðast þannig:
Kröfur vegna greiðslukorta | 2.048.369 | 1.704.642 |
Aðrar viðskiptakröfur | 107.971 | 119.782 |
Samtals | 2.156.340 | 1.824.424 |
17. Yfirlit eiginfjárreikninga:
Yfirlit eiginfjárreikninga: | Óráðstafað eigið fé |
Eigið fé 1.1. | 4.561.215 |
Hagnaður skv. rekstrarreikningi | 1.056.411 |
Arður til ríkissjóðs | (1.000.000) |
Eigið fé 31.12. | 4.617.626 |
18. Í tengslum við starfsemi ÁTVR voru 42 húsaleigusamningar í gildi í árslok 2019
19. Fimm ára yfirlit
2019 | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 | |
---|---|---|---|---|---|
Rekstur: | |||||
Rekstrartekjur | 36.969 | 35.291 | 34.276 | 33.058 | 29.395 |
Rekstrargjöld | (35.619) | (33.937) | (32.729) | (31.216) | (27.985) |
Rekstrarhagn. f. afskr. | 1.350 | 1.354 | 1.547 | 1.842 | 1.410 |
Afskriftir | (246) | (237) | (208) | (222) | (178) |
Rekstrarhagnaður | 1.104 | 1.117 | 1.339 | 1.620 | 1.232 |
Hreinar fjárm.tekjur | -48 | -6 | 28 | 9 | -11 |
Hagnaður ársins | 1.056 | 1.111 | 1.367 | 1.629 | 1.221 |
Efnahagur: | |||||
Fastafjármunir | 1.540 | 1.326 | 1.239 | 1.166 | 1.227 |
Veltufjármunir | 4.706 | 5.008 | 5.104 | 5.772 | 4.716 |
Eignir alls | 6.246 | 6.334 | 6.343 | 6.938 | 5.943 |
Eigið fé | 4.618 | 4.561 | 4.450 | 4.834 | 4.204 |
Skammtímaskuldir | 1.628 | 1.773 | 1.893 | 2.104 | 1.739 |
Eigið fé og skuldir alls | 6.246 | 6.334 | 6.343 | 6.938 | 5.943 |
Helstu kennitölur um afkomu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins á síðustu fimm árum:
2019 | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 | |
---|---|---|---|---|---|
Rek.hagn.f.afskr./Tekjur | 3,7% | 3,8% | 4,5% | 5,6% | 4,8% |
Veltufjárhlutfall | 2,89 | 2,82 | 2,70 | 2,74 | 2,71 |
Eiginfjárhlutfall | 73,9% | 72,0% | 70,2% | 69,7% | 70,7% |
Arðsemi eigin fjár | 23,2% | 25,0% | 28,2% | 38,8% | 27,2% |