Birgjar
Birgjar
Birgjar
Birgjar

Við gætum jafnræðis við val og dreifingu á vöru. Birgjar hafa aðgang að sérstökum þjónustuvef til að tryggja að upplýsingagjöf sé sem best. Markmiðið er að veita þeim aðgang að upplýsingum sem þá varðar með bestum hætti.

Stefna
Birgjar
Stefna og framkvæmd ÁTVR gagnvart birgjum

Allir sem hafa leyfi til innflutnings á áfengi geta sótt um að vörur þeirra fari í sölu.

Áður en viðskipti geta hafist þarf birgir að undirrita stofnsamning um vörukaup áfengis. Samningurinn er heildarsamningur og tekur til allra vörukaupa ÁTVR frá birgi og veitir jafnframt aðgang að þjónustuvef. Jafnframt kveður samningurinn á um réttarstöðu aðila á grundvelli reglugerðar um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi (nr. 1106/2015).

Samskipti
Birgjar
Samskipti við birgja

Sérstakur þjónustuvefur, svokallaður birgjavefur, er aðgengilegur öllum birgjum. Á vefnum geta birgjar sótt um vörur, gert verðbreytingar, haft yfirsýn yfir stöðu umsókna auk þess að nálgast söluskýrslur og framlegðarskrá. Á vefnum eru einnig birtar almennar fréttir og upplýsingar sem snúa að samskiptum birgja og ÁTVR. Stöðugt er unnið að endurbótum á framsetningu og uppsetningu á vefnum meðal annars hefur innskráning verið gerð öruggari með því að innleiða skráningu með rafrænum skilríkum.

Til að fá fram skoðanir birgja á ýmsum þáttum er árlega framkvæmd viðhorfskönnun. Við úrvinnslu er birgjum skipt í tvo flokka eftir veltu. Stórir birgjar eru þeir sem hafa yfir 200 m.kr. viðskipti á ársgrundvelli við ÁTVR en minni þeir sem eru með viðskipti undir þeirri upphæð. Almennt eru stærri birgjar ánægðari en þeir minni. Niðurstöðurnar eru rýndar um leið og leitað er leiða til að gera betur í samskiptum og þjónustu.

Ánægja birgja með ÁTVR í heildina lækkaði á milli ára, er nú 3,88 en var 4,02 á skalanum 1-5. Birgjar eru almennt nokkuð ánægðir með upplýsingagjöf frá ÁTVR og svara 72% að þeir séu mjög eða frekar ánægðir. Þjónusta einstakra deilda fær einnig góða einkunn og innkaupadeildin sem að jafnaði er í mestum samskiptum við birgja fær mjög góða einkunn, en 88% eru mjög eða frekar ánægðir með þjónustu deildarinnar. Þær áskoranir sem ÁTVR stendur jafnan frammi fyrir í samskiptum við birgja er að tryggja hlutleysi við ákvarðanir og á það jafnt við um val, innkaup, dreifingu og framstillingu vöru.

Innskráning á birgjavef hefur verið gerð öruggari með því að innleiða skráningu með rafrænum skilríkjum.

713
nýjar vörur teknar í reynslusölu
65%
innlendur bjór
80%
birgja ánægðir með ÁTVR