Við leitum stöðugt nýrra leiða til þess að bæta reksturinn. Við viljum að það ríki sátt í samfélaginu um núverandi fyrirkomulag á sölu áfengis.
Stór hluti tekna er með einum eða öðrum hætti hluti af tekjum ríkissjóðs þ.e. í formi áfengis- og tóbaksgjalda, virðisaukaskatts og arðs. Í ár nam þessi upphæð um 26.228 m.kr. en var 25.144 m.kr. árið 2018. Alls nam arður ÁTVR til ríkissjóðs 1.000 m.kr. 1. janúar voru gerðar breytingar á áfengisgjöldum þannig að gjöld á alla flokka þ.e. bjór, léttvín og sterkt áfengi, hækkuðu um 2,5%. Á sama tíma voru breytingar á tóbaksgjaldi á alla flokka þ.e. sígarettur, vindla og neftóbak hækkaði um 2,5%.
Hagnaður ÁTVR var 1.056 m.kr. í samanburði við 1.111 m.kr. árið 2018. Rekstrartekjur ársins voru 36.969 m.kr. og hækkuðu um 4,8% á milli ára. Rekstrargjöld námu 35.865 m.kr. Þar af var vörunotkun 31.274 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 1.350 m.kr. eða 3,7% miðað við 3,8% á fyrra ári. Arðsemi eiginfjár á árinu var 23,2%.
Tölur í sviga sýna 2018.
Tekjur af sölu áfengis voru 27.275 m.kr. án vsk. og hækkuðu um tæp 6% á milli ára. Alls voru seldir 22,7 milljónir lítra af áfengi. Sala ársins var 3,1% meiri í lítrum í samanburði við fyrra ár. Sala jókst í öllum flokkum það er léttvíni, sterku áfengi og bjór. Mest var aukningin í sölu á sterku áfengi eða 15%.
Tekjur af sölu tóbaks voru 9.594 m.kr. án vsk. og jukust um 1,6% á milli ára. Tóbakssala dróst saman í reyktóbaki, sígarettum (vindlingum) og vindlum en sala neftóbaks jókst á árinu um 3,1%.
Í upphafi árs var Vínbúðin Dalvegi endurbætt, kælir var stækkaður og meðal annars afmarkaður minni kælir fyrir sérbjór, síder og gosblöndur. Vínbúðin Skeifunni lokaði í um tvo mánuði frá janúar fram í mars en Vínbúðin fór í gegnum gagngerar breytingar. Kælir var stækkaður og allt búðarrýmið endurgert. Vínbúðin Reykjanesbæ var endurnýjuð í sama húsnæði. Vínbúðin Selfossi flutti í nýtt húsnæði að Larsenstræti 3. Nýja húsnæðið er mun stærra en eldra húsnæðið og öll aðstaða mun betri bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Í október var Vínbúðin Patreksfirði stækkuð og innréttingar endurnýjaðar. Í október stækkaði Vínbúðin Hvammstanga og vöruvalið var nánast tvöfaldað. Í nóvember flutti Vínbúðin Akranesi í nýtt og mun stærra húsnæði, settur var kælir fyrir bjór, gosblöndur og síder.